Safn: Olíukennd Húð
Undir hverri svitaholu er fitukirtill sem framleiðir náttúrulega olíu sem kallast húðfita og hún heldur húðinni rakri og heilbrigðri. En þegar kirtlarnir framleiða of mikla olíu getur húðin orðið of olíukennd og feit. Stundum er hægt að sjá stórar og áberandi svitaholur sem hafa tilhneigingu til að fá fílapensla og bólur. Útbrot eru líklegri til að myndast vegna þess að húðfita og dauðar húðfrumur festast í svitaholunum.
Til að losna við umfram fitu er gott að nota mildar húðvörur og djúphreinsi. Æskilegt er að næra húðina með rakagefandi innihaldsefnum. Ef húðin fær ekki nægilegan raka og næringu þá fer hún að mynda meiri fitu sem varnarvegg. Þannig heldur vítahringurinn áfram. Forðast skal mjög feit krem sem innihalda efni eins og shea smjör, kókosolíu og ýmsar steinefnaolíur. Til að losna við dauðar húðagnir er gott að nota milda sýru í vökvaformi, t.d. glycolic acid eða salicylic acid, einu sinni til tvisvar í viku.
Mælt er með léttu og vatnskenndu rakakremi sem inniheldur hýalúrónsýru (hyaloronic acid) og C-vítamín. Eiginleikar C-vítamíns eru meðal annars að draga raka af húðfrumum, halda þannig rakastiginu í jafnvægi og þar með koma í veg fyrir offramleiðslu olíu í fitukirtlunum.
Vert er að taka það fram að höfundur er áhugamaður um húðheilbrigði og húðumhirðu vegna síns eigin húðvanda en er ekki húðlæknir að mennt.
Ef þú ert í miklum erfiðleikum með húðina þína mælum við alltaf eindregið með því að leita til læknis eða annarra fagaðila.
Hér fyrir neðan finnur þú góðar vörur fyrir olíukennda húð.
-
LANEIGE Lip Sleeping Mask EX, Berry 20 g
Venjulegt verð 2,999 ISKVenjulegt verð5,199 ISKSöluverð 2,999 ISKUppselt -
MELIXIR Vegan Lip Butter with Agave
Venjulegt verð Frá 1,190 ISKVenjulegt verð3,999 ISKSöluverð Frá 1,190 ISKÚtsala -
Kaja Whipped Dream Multi-Eye & Cheek Color
Venjulegt verð 1,500 ISKVenjulegt verð4,299 ISKSöluverð 1,500 ISKÚtsala


