Safn: Þurr Húð
Eitt algengasta einkenni þurrar húðar er sú tilfinning að húðin sé allt of þétt og jafnvel hörð á yfirborðinu. Þessi húðgerð er með litlar svitaholur vegna of lítillar fituframleiðslu og þar af leiðandi þjáist hún af fituskorti.
Þurr húð getur verið viðkvæm og brugðist illa við þurru og köldu loftslagi (sem einkennir hina íslensku veðráttu). Með tímanum þróar hún einnig með sér fínar línur vegna of mikils rakaskorts. Þurr húð þolir illa sterk og virk innihaldsefni.
Þessi húðgerð er ekki tímabundið ástand, heldur er hún almennt talin varanlegt ástand. Helsta einkenni þurrar húðar er áferð hennar. Vegna þurrks á milli húðlaganna verður húðin þurr og flagnar. Dauðar húðfrumur safnast saman á yfirborðinu sem gerir húðina grófa og sprungna og jafnvel svolítið leðurkennda.
Góð ráð fyrir þurra húð er að bæta við miklum raka, með mildum innihaldsefnum, við húðumhirðuna eins og hýalúrónsýru (hyaluronic acid), glýseríni (glycerin) og pantenóli (panthenol). Jójóbaolía, squalane-olía og shea-smjör geta gert undur fyrir þurra húð. Gott er að nota mildan húðhreinsi en ekki freyðandi hreinsi. Nauðsynlegt er að nota olíuhreinsi til að auka rakastig húðarinnar og losna þannig við dauðar húðfrumur, þá er mun auðveldara fyrir innihaldsefnin að komast inn í húðina. Til að fá djúpraka er best að þerra húðina létt eftir andlitsþvott og sturtu en alls ekki þurrka hana alveg.
Besta vörnin gegn þurri húð er að bera á sig krem daglega þegar húðin er rök. Þannig getur kremið náð dýpra inn í húðina og gefið henni enn meiri raka. Bætiefni eins og ómega-3 fitusýrur sem má til dæmis finna í lífrænni hampolíu eða hörfræolíu eru einstaklega góðar fyrir þau sem þjást af húðþurrki.
Forðast skal húð- og snyrtivörur sem innihalda alkóhól eins og ethanol, methanol, ethyl alcohol, denatured alcohol, isopropyl alcohol, SD alcohol, and benzyl alcohol. En gott er að muna að cetearyl, stearyl, cetyl og behenyl (mismunandi tegundir alkóhóls) eru til bóta.
Vert er að taka það fram að höfundur er áhugamaður um húðheilbrigði og húðumhirðu vegna síns eigin húðvanda en er ekki húðlæknir að mennt.
Ef þú ert í miklum erfiðleikum með húðina þína mælum við alltaf eindregið með því að leita til læknis eða annarra fagaðila.
Hér fyrir neðan finnur þú mildar og góðar vörur fyrir þurra húð
-
Beauty of Joseon Ginseng Cleansing Oil
Venjulegt verð 4.150 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á -
Beauty of Joseon Relief Sun: Rice + Probiotics SPF50+PA++++
Venjulegt verð 3.999 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á0 ISKSöluverð 3.999 ISKUppselt -
Uppselt
I'm From Rice Toner
Venjulegt verð 4.999 ISKVenjulegt verðEiningaverð / áUppselt -
I'm From Mugwort Essence
Venjulegt verð 6.599 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á0 ISKSöluverð 6.599 ISK -
LANEIGE Lip Sleeping Mask EX, Berry
Venjulegt verð 3.999 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á -
Purito Wonder Releaf Centella Serum Unscented 60 ml
Venjulegt verð 5.099 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á0 ISKSöluverð 5.099 ISK -
Uppselt
TirTir Milk Skin Toner
Venjulegt verð 5.999 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á0 ISKSöluverð 5.999 ISKUppselt -
Uppselt
I'm From Rice Cream
Venjulegt verð 5.999 ISKVenjulegt verðEiningaverð / áUppselt -
Beauty of Joseon Radiance Cleansing Balm
Venjulegt verð 4.199 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á0 ISKSöluverð 4.199 ISK -
Beauty of Joseon Dynasty Cream
Venjulegt verð 4.999 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á -
Purito Seoul Dermide Cica Barrier Sleeping Pack
Venjulegt verð 4.999 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á0 ISKSöluverð 4.999 ISK -
Medicube - PDRN Pink Collagen Gel Mask
Venjulegt verð 1.799 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á -
Skin1004 Madagascar Centella Ampoule
Venjulegt verð Frá 2.290 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á0 ISKSöluverð Frá 2.290 ISK -
Benton Fermentation Eye Cream
Venjulegt verð 4.999 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á -
I'm From Rice Serum
Venjulegt verð 5.999 ISKVenjulegt verðEiningaverð / á0 ISKSöluverð 5.999 ISK -
Isntree Yam Root Vegan Milk Cleanser 220 ml
Venjulegt verð 4.999 ISKVenjulegt verðEiningaverð / áUppselt