28glow.is
Purito Dermide Cica Barrier Sleeping Pack
Purito Dermide Cica Barrier Sleeping Pack
Vaknaðu með heilbrigðari, þéttari og ferskari húð. Öflug blanda af Centella Asiatica, squalane og keramíði. Sérstaklega góður rakagjafi fyrir fólk með exem, psoriasis, kláða og ofþurrkun. Húðin verður endurnærð og roði minnkar.
Centella Asiatica
- Eykur collagenframleiðslu og teygjanleika húðarinnar
- Bakteríudrepandi, græðir sár og dregur úr húðbólgum
- Mjög gagnlegt gegn húðkvillum eins og exemi, psoriasis og rósroða
Keramíð (Ceramide NP)
-
Vægt innihaldsefni. Byggt upp eins og náttúruleg húðfeiti
- Styrkir og verndar húðina frá skaðlegum umhverfisáhrifum
- Kemur í veg fyrir rakauppgufun með því að þétta rakadrægni húðarinnar
- Viðheldur heilbrigðu jafnvægi milli olíu og vatns
Squalane
- Kemur í veg fyrir rakauppgufun og sléttir húðina
- Býr til heilbrigða rakahindrun sem kemur í veg fyrir vatnstap og viðheldur jöfnu rakastigi húðarinnar að næturlagi
Pantenól
- Milt innihaldsefni og breytist í B-vítamín þegar borið er á húðina
- Veitir öflugu raka og vernd fyrir húðina
- Nærir og sefar ertingu. Er rakagefandi og dregur úr bólgum og roða
Næringarríkt næturkrem sem umvefur og verndar húðþekjuna gegn skaðlegu umhverfisáreiti á meðan þú sefur. Mælt með að nota á eftir rakakremi eða strax eftir serumi á erilsöm kvöldum.
Áhugaverðar staðreyndir - Keramíð er fita eða lípíð sem finnast í húðfrumum og er frá 30-40% af ytra húðlaginu (húðþekja). Hlutverk þess er að koma í veg fyrir þurrk og sýkingu. Keramíð þjónar sem fyrsta varnalína líkamans fyrir utankomandi áreiti eins og mengun og eiturefnum.
80 ml