Safn: Mislitun & Litarblettir

Við könnumst nú öll við litarbletti og ójafnan húðlit í líkamanum eða í andlitinu. Við erum nú mannleg og fegurðin felst í hinu ófullkomna ef svo má að orði komast. En litarblettir eru í raun breyting á húðlit sem stafar af ójöfnu litarefni, vegna sólarljóss, hormónabreytingum eða annars. En einnig getur aflitun verið eftir bólgu, ójafna húðáferð eins og þurrir blettir eða uppsafnaðar dauðar húðfrumur. Mengun í loftinu getur oft stuðlað að ójöfnum húðlit vegna loftborinna mengunarefni sem loða við húðina og tæra húðþekjuna og veikja hana. Þar af leiðandi verður húðin viðkvæmari fyrir sólskemmdum.

Okkar helsta ráð er að nota alltaf sólarvörn því sólin er aðalástæðan fyrir litarefnabreytingum í húðinni. Önnur ráð er að bæta við C-vítamín serum í húðumhirðu þinni sem hefur mýkjandi áhrif, lagar grófar hrukkur og fínar línur. Þannig verður heildaráferð húðarinnar sléttari og bjartari.

Vert er að taka það fram að höfundur er áhugamaður um húðheilbrigði og húðumhirðu vegna síns eigin húðvanda en er ekki húðlæknir að mennt.
Ef þú ert í miklum erfiðleikum með húðina þína mælum við alltaf eindregið með því að leita til læknis eða annarra fagaðila.

Hér að neðan finnur þú vörurnar fyrir ójafna húðlit og litarblettir.