Safn: Viðkvæm Húð

Algengasta einkenni viðkvæmrar húðar er roði og erting sem getur valdið stingandi og stífri tilfinningu í húðinni. Þessi húðgerð bregst hratt við hitabreytingum, breytingum á rakastigi og streitu. Viðkvæm húð þarf mildar, rakagefandi og róandi vörur.

Það er nauðsynlegt að hafa næringarríkt rakarkrem í rútínunni og gott að byrja á því að hreinsa húðina með mildum olíuhreinsi og láta mjólkurhreinsi fylgja þar á eftir. Fyrir viðkvæma húð er mjög mikilvægt að huga að hollu mataræði, reglulegri hreyfingu og nægum svefni.

Gott ráð fyrir viðkvæma húð er að skoða vel innihaldsefni og varast alkóhól, gerviilmefni og steinefnaolíu (t.d. pálmaolíu og paraffín). Rannsóknir hafa sýnt fram á að paraffín og gerviilmefni geti haft truflandi áhrif á hormónastarfsemi, þessi efni eru einnig ertandi fyrir húðina og geta valdið skaðlegum áhrifum til frambúðar. Eitt af stærstu og alvarlegustu áhrifum steinefnaolíu er hversu þurrkandi hún er og að hún getur stíflað svitaholur. Einnig getur hún valdið bólum og skaðað húðþekjuna svo eitthvað sé nefnt. Það er gott fyrir viðkvæma húð að forðast að nota þessi innihaldsefni í húð- og snyrtivörum. 

Þó er sumt alkóhól, t.d. (e. cetearyl, stearyl, cetyl og behenyl), sem er til bóta og erta hvorki né þurrka húðina. Samkvæmt FDA (Food and Drug Administrator) hafa þessar gerðir alkóhóls verndandi áhrif gegn bakteríum og rakatapi með því að mynda varnarlag á yfirborðinu og gera húðina slétta.

Gott er að forðast að nota sólarvarnir í spreyumbúðum eða úðaformi þar sem þær geta verið úr sterkum formúlum. Mælt er með mildum innihaldsefnum eins og sinkoxíði og títantvíoxíði (e. zink oxide & titanium dioxide).

Ávaxtasýrur eru mjög vinsælar og fjölhæfar í húðumhirðu. Viðkvæm húð þarf að fara varlega í þessum málum, sumar gerðir viðkvæmrar húðar þolir vægar ávaxtasýrur í litlu magni, en aðrar alls ekki. Það er mikilvægt að vita hvað húðin þolir og fara eftir því. Fólk með viðkvæma húð ætti að forðast stórar breytingar í húðrútínu, hvorki skipta út öllum vörunum í einu né nota of margar nýjar vörur í senn. Það er erfiðara fyrir viðkvæma húð að núllstilla sig ef eitthvað fer úrskeiðis. 

Ávaxtasýrur eru mjög vinsælar og fjölhæfar í húðumhirðu. Viðkvæm húð þarf að fara varlega í þessum málum, sumar gerðir viðkvæmrar húðar þola vægar ávaxtasýrur í litlu magni en aðrar alls ekki. Það er mikilvægt að vita hvað húðin þolir og fara eftir því. Fólk með viðkvæma húð ætti að forðast stórar breytingar í húðrútínu, hvorki skipta út öllum vörunum í einu né nota of margar nýjar vörur í senn. Það er erfiðara fyrir viðkvæma húð að núllstilla sig ef eitthvað fer úrskeiðis.

Hér að neðan finnur þú mildar og góðar vörur fyrir viðkvæma húð.